Léttari í dag en í gær ;O)

Velkomin/n á síðuna.

26.09.2007 08:59:36 / Lullan

1 vika búin ...

:lol: Jæja þá er fyrstu formlegu viku lokið og ég náði að taka þetta svona cirka 75% og afraksturinn var -1,6 kg þessa vikuna ...

Gott mál, tek þetta svo aðeins alvarlega þessa viku heeh heheh


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.09.2007 14:13:41 / Lullan

Er ennþá hérna...

Hæ þarna úti...

Ok veit ég hef ekki verið duglega að skrifa hérna inn, kíki hérna öðru hvoru en hef alltof mikið að gera við að skrifa hér...amk tel ég það !! Sem er auðvitað allt bull og vitleysa, nema hvað ég er búin að fara í vigtun eftir sumarfrí og alles... + 5 kg ok leiðinlegt en viðbúið amk þegar maður þekkir líkamann sinn það vel að þegar hálft kg upp þá finn ég það.

Stefnan er sett niður aftur ekki spurning, ætla að stefna á -2,5 kg þar til í ágúst á næsta ári = 27.5 kg skulu fara, veit að það verður upp og niður suma mánuði en skal samt sem áður takast þetta..... fer í það að mæla kroppinn upp á nýtt og halda skrá um þetta, læt svo vita amk á mánaðar fresti hvernig gengur - kg og - cm :haha:

Kíki alltaf á ykkur öður hvoru skvísur..og takk fyrir innlitið hér...


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.04.2007 23:36:54 / Lullan

LOKSINS !!!

:lol: Jæja loksins loksins, ég fór í vigtun í gær og skráði mig aftur inn hjá DDV Íslandi, skondið að sitja íslenskan fund....gat meira að segja frætt skvísurnar þarna um danskan camebert sem er ekki nema 11% feitur, heitir Castello og fæst amk í Hagkaup....en þessi ostur er æði svona með helgarbrauðinu í morgunmat, þá er svo gaman að tríta sig með camebert ofan á brauðið...aðeins breyta til sko....

Allaveganna mitt í allri ritgerðarskrifunum, geri ég þetta held að ég fái bara meiri orku af þessu öllu grænmeti..phuhahha eins og daninn segir, en ég er komin með 50.000 orð af 120.000 og lokatíminn nálgast óðfluga.

Er búin að vera frekar svöng í kvöld...eða svona frekar kannski langar bara ógeðslega mikið í EITTHVAÐ !!! Kannist þið við þetta hahahah:$

Takk fyrir kvittið skvísur, ég reyni að taka rúntinn, en er annars eiginlega alveg OFF þangað til ritgerðarskrifin eru búin....

Hafið það gott þangað til og verið duglegar, þið getið þetta vel, hafið sýnt það áður og sýnið það áfram.


» 2 hafa sagt sína skoðun

06.03.2007 21:54:13 / Lullan

Seint skrifa sumir en skrifa þó !!!

Já er ennþá hér elskurnar mínar :D

Flutt á skerið góða eða Ísland eins og það heitir á móðurmálinu, er búin að vera í starfsnámi síðan í janúar og var að ljúka við verkefni á íslensku sem ég þýddi síðan yfir á ensku...sauð saman skýrslu um starfsnámið hve frábært það væri fyrir nemanda og bla bla...þetta fer allt í útprentun á morgun og síðan í póst....skilatíminn er 14.mars næstkomandi og þá í skólanum mínum í DK... Síðan er bara að klára að skrifa blessuðu lokaritgerðina sem er með skilatíma 8.mai....120.000 orð phúha eins og sagt er, en þetta gengur smátt og smátt, skipulagning er númer 1,2 og 3

Talandi um skipulagingu þá hef ég klúðrað ddv dæminu mínu,ekki misskilja mig, hef ekki ennþá þyngst, en er ekki sátt við að vigtin fari niður á við...hehe eins og það gerist þegar grænmetisskamturinn er ekki snertur !!!! Nei borða svona 50% ennþá eins og DDV suma daga jafnvel alveg 80% en betur má ef duga skal !!

Og hef ég ákveðið að skella mér á Íslenskan DDV fund, skrá mig inn aftur og taka þessi 20 kg með trompi....svo fer ég aftur í hlaup/skokk/göngu gírinn en eins og við vitum þá gengur maður alls ekki nóg hér á Íslandi amk ekki miðað við DK, og þar pirra ég mig mikið á því að geta ekki rölt í búðina eða í vinnuna.....haha já veit það vel ég get þetta alveg en einhvern veginn gerir maður það EKKI !!! Og get svo pirrað mig á því 8|

En þriðjudaginn í næstu viku kl 17.00 arka ég og aukakílóin á fund DDV og hlakka ég mikið þess....ætlaði reyndar að stefna á að fara í dag, en vegna verkefnaskila vildi ég ekki stressa mig líka á þessu.

Endilega látið mig vita ef þið kíkið ennþá hérna inn, ég fer að verða aktíf aftur hér..ja svona á milli ritgerðaskrifa ....

Hilsen.... og verið góð við hvort annað og borðið grænmeti.


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.11.2006 22:20:11 / Lullan

ER ENNÞÁ HÉR ;O)

 

Halló elskurnar mínar...hér næ ég að troða loksins mynd af mér inn á bloggið...ja hérna hvað það hefur verið leiðinlegt að geta ekki troðið þessari mynd hér inn fyrr....jú jú það sést einhver munur frá því fyrsta myndin var sett inn í ágúst 2005 ;O)

Þessi mynd er tekin minnir mig í september/október....og hef ég í raun ekki misst mörg kíló síðan í vor...ja 6 kg kannski...en hef styrkst og vil frekar gera þetta hægt og sígandi en að hrynja niður og standa eftir með húð dauðans..og fitna svo aftur í húðartjaldið mhúahahhahahahhahahahahahha

Annað að frétta er að prófið er framundan..verkefnavikunni er lokið og er ég að klára svona smá test á netinu sem er í netáfanga sem ég er í,svo er bara undirbúningur fyrir loka skriflega prófið...sem verður 30.nóvember...svo munnleg vörn 7.desember á verkefninu sem við kláruðum í síðustu viku, það fjallaði um Pilgrim skartgripi og svona desk research á þýskum markaði...skemmtilegt bara.

Þá tekur við kveðjupartý 9.des og síðan pakka niður !!! já ég er að fara að flytja til Íslands 17.des, tek starfsnámið á Íslandi eftir áramótin, klára lokaritgerðina þar og kem síðan aftur hingað til að verja ritgerðina í endaðan mai..og útskrifast ( en ekki hvað ) 28.júní 2007....

Já en aðstæður hafa bara breyst og ég ákvað að flytja heim, elska Danmörk frá A til Ö en elska líka einn strák á Íslandi og flyt því heim með allt mitt hafurtask....er hamingjusöm og líður vel....

Takk fyrir kvittið og hey...ég held áfram að blogga....tek skokkið líka á Íslandi og kannski skelli ég mér á DDV fundi þar, gaman væri að sjá muninn á þeim frá fundunum hér....:haha:


» 8 hafa sagt sína skoðun

11.10.2006 15:20:46 / Lullan

Nýtt útlit....


Halló þið öll sem kíkið hingað reglulega....lítið sem ekkert að frétta af léttingi hérna hjá mér, ætla að skokka til vigtunarráðgjafa aftur eftir haustfrí og skrá mig, er ekki að gera sig þessi doði í mér og það að ég þurfi að mæta í vigtun reglulega heldur mér við efnið...

En ég ákvað að breyta síðunni aðeins, en get ekki ennþá sett inn andlitsmyndir.... :$

Verið þið duglegar og ef þið eigið til hvatningarorð eða spark í rassgatið mitt til að hreyfa við mig þá er það SVO VEL ÞEGIÐ... ég er föst í þessum tug mínum og vantar 3 kg til að komast niður úr honum....


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.09.2006 13:54:13 / Lullan

Stend í stað !!!1

8| Halló halló....já ég hef verið á Íslandi tók smá skrepp þangað, yndislegt alveg.

En matarræði og vigtun ...hvað er það ??? E-h ofan á brauð ? Ég er með þetta á bak við eyrað, en það gerist ekki neitt, átti 1 kg eftir í næsta tug sem ég hef ekki séð í amk 3 eða 4 ár en nei fór upp aftur um 2 kg og er föst í þeirri tölu. Ok ok veit ósköp vel að ég hef ekki verið að vigta ofan í mig, tek svona tarnir og eins er ég að klikka á hádegismatnum, hafi það fyrr skeð. En í þessum töluðu orðum er ég á leið út í búð með þann tilgang einan að versla í súpuna góðu til þess að eiga hér heima næstu 4 daga amk, enginn skóli á morgun ( og þá er klassískt að ég klikki á hádegismat ) svo er helgin og mánudagurinn en það er ekki skóli á mánudag fyrr en eftir hádegi.

Þannig að nú er ég að taka mig í gegn, fór reyndar út að skokka í morgun, hóstaði eins og rolla ( reykingarhósti dauðans !! ) og hugsaði mér þegjandi þörfina þegar ég kom heim og leið eins og hundi að koma af sundi...elska skokkstílinn minn...er eins og asni syngjandi með ( er alltaf með MP3 spilarann með og hlusta á lög ) og brosi út að eyrum, verst þegar ég hleyp/skokka í gegnum fluguger og verð með svartar tennur eins Jim Carrey í einni bíómyndinni !!!!

Bannerinn stendur semsagt fyrir sínu hér efst á síðunni og mig vantar svo að komast niður í næsta tug, líður svona eins og ég sé skilin útundan, kemst aldrei lengra því ég er ekki með réttu töluna !!! Svo er þegar haustfríið er búið ætla ég að skella mér til hans Bjössa í Equinox hér í Kolding, en jú World Class hjónin keyptu upp þessar stöðvar hér í DK og langar mig að kanna einkaþjálfara í amk mánuð, jafnvel fram að jólum til að komast e-h áfram....

Maginn er eins, blæs út og verkir en þetta er bara stress í mér og áhyggjur...sumir dagar eru bara betri en aðrir og stundum gengur bara mikið á í minni fjölskyldu, nenni samt ekki að vera svona, er ekki hægt að fá e-h te til að róa magann ???

Takk fyrir kvittið...þið eruð æði..:haha:


» 4 hafa sagt sína skoðun

11.09.2006 19:06:00 / Lullan

ARG !!!

:evil: Hvað er þetta með blog.central !! Get ekki sett inn andlitsmyndir, hvorki hér til hliðar af minnkandi mér eða hér beint á bloggið, það kemur alltaf upp villumelding, hefur reyndar verið svona síðan í mars ! Þið sem hafið tékkað á því sjáið að ég hef ekki sett inn mynd síðan þá... Allaveganna þá er þolinmæði mín búin...búin að bölva hér og ragna eins og sverasti sjómaður...:haha:

Hreyfing síðustu daga hefur verið upp og niður, jú ég næ að gera magaæfingar og lyfta lóðum hér heima og fer svo í 3-4 km göngu annan hvorn dag, nú fer skvísan mín með mér á hjóli og við skemmtum okkur vel saman ég á labbi/skokki og hún rekandi á eftir mér á hjólinu hahahah nú á þessum stundum er ég fegin að daninn skilur ekki íslensku því að við erum náttúrulega gráthlægilegar saman :D

Svo fékk ég í magann !! skildi ekkert í því að ég er búin að vera að drepast í maganum í rúma viku, hann bólgnaði út eins og ég væri komin á 7 mánuð og trúið mér ég er ekki ólétt en ég ákvað loksins að kíkja til læknis í dag og niðurstaðan þar var að ég er full af skít haha kannski hrynja nokkur kg þegar ég losna við það sem fyllir þarmanna...ahhaha vona að þið hafið húmor fyrir kúk og piss húmor því að mér fannst þetta bara fyndið "full of shitt" reyndar talaði hún á dönsku og man ég ekki frasann í augnablikinu á dönsku !! Hann er örugglega líka fyndin. Já ég á að éta einhverjar töflur og vona að það lagist, mæti svo aftur til hennar eftir rúma viku. Annað fékk ég líka að vita, en ég er með klemmda taug undir herðablaðinu sem veldur ógeðslegum verk undir vinstra brjósti og þaðan doða út í hendurnar ! Já mér var ekki farið að standa á sama sko....skíthrædd að ég væri að fá hjartaáfall en það var líka ennþá meira kvetjandi fyrir mig að létta mig...fann fyrst fyrir þessu í febrúar við það að ég hrundi næstum niður út á götu !! Veit ég er þrjósk og ákvað að bíða aðeins...úps....6 mánuðir !:S

Ætla að taka daginn snemma í fyrramálið og skokka hér upp í Seest hverfi, upp á móti tekur það á lærin og kálfanna + rassinn minn stóra hehehe og svo niður á móti hleyp ég eins og vindurinn..alltaf gaman að hlaupa heim aftur :P

Skelli inn vigtunartölum á 2 vikna fresti


» 5 hafa sagt sína skoðun

01.09.2006 23:12:59 / Lullan

Jebb

;) Eftir miklar mælingar og vigtun hér heima fyrir, er ekki ennþá búin að skrá mig aftur inn í DDV, ætla að taka þetta aðeins hér heima fyrir og vigta mig sjálf, en hika ekki við að skella mér til þeirra ef ég fer að tapa þráðinum.

En amk síðan 17.júní er ég búin að missa 4,1 kg og er það bara frábært og eins eru 40 cm farnir overall af líkamanum síðan í ágúst í fyrra...gleði gleði gleði.. nú þurfa bara 40 cm að hverfa í viðbót og 18 kg niður í fyrsta takmark....he he he

Takk fyrir kvittið hér skvísur og peppið, þið eruð æði:D

Verst þykir mér að Føtex hér í Danmörku er hætt að selja DDV vörur og mig vantar svo bláberjasultuna þeirra !! Arg..tók bara pirringskast þar inni þegar ég ráfaði eins og rugluð rolla á mili rekka að leita og leita... mundi svo ekki hvaða búðir væru að selja frá þeim líka !:^) Og kannski er engin af þeim staðsett hér í Kolding !!! Já viðurkenni það að ég er háð vörunum þeirra....dem verð eiginlega að skella mér á fund í næstu viku til að finna út úr þessu öllu saman.....

Hey þar til næst ...ætla að ná einu kg niður líka í næstu viku


» 5 hafa sagt sína skoðun

20.08.2006 18:03:39 / Lullan

Já..veit það ..

:D Hæ hæ hæ ææææææææææææææææ

Er hér og er ekki byrjuð á DDV matarræðinu, jú borða svo sem hollan mat en hef ekki vigtað ofan í mig, er búin að leggja bjórinn á hilluna og gerði það 16.ágúst ( því það er dagurinn sem ég byrjaði í fyrra ) og ætlaði að byrja þann dag á fullu í matarræðinu :S Ekki gekk það eftir, held ég vegna þess að ég var ekki búin að stilla kollinn minn ínn á það að byrja á fullu, núna hef ég verið að fara yfir bloggin og þá sérstaklega lesa viskuna hennar Sigrúnar Þ eða barbietec hún á til endalaus góð ráð fyrir þá sem eru að byrja hvort sem það er aftur eða bara alveg á byrjuninni....fyndið þegar ég hugsa út í það "AF HVERJU HÆTTI ÉG Á ÞESSU MATARRÆÐI" ? Hvað verður til þess að við dröbbumst niður og stöndum okkur ekki gagnvart okkur sjálfum ? Í mínu tilfelli er það rúntínan, ég á rosalega erfitt með mig þegar ég er ekki í minni vanalegu rútínu, ferðalög, frí í skólanum og helgarnar eða bara að vera boðið í mat !!! Á ég að láta þetta trufla mig ? NEI veit það vel og reyndi mikið að taka á þessu vandamáli mínu allan síðasta vetur.

En nóg af rausi, nú er markmið mitt að losna við þessi 18 kg sem eftir eru í fyrsta takmarkið mitt ( fyrsta ? nei alls ekki he he he ) það góða við DDV er að þegar maður er búin að vera á þessari matarreglu í góðan tíma, hefur maður þetta alltaf á bak við eyrað og það skilaði mér engri þyngdaraukningu í sumar,.... ja kom 1,5 kg þyngri út en það hlýtur bara að hafa verið bjúgur því þau kg voru farin strax á fyrstu viku hér. :haha:

Fram að mínu afmæli eru 87 dagar eða 11 vikur og stefni ég á að losa mig við 8 kg á þeim tíma....með réttu matarræði og eins skokk/göngutúrunum mínum. Ég fór í hlaupagreiningu hér í Intersport og fjárfesti ( aftur ) í hlaupaskóm, hinir dóu í sumarvinnunni ....þannig að nú eru mér allir vegir færir, skelli göngumælinum í buxnastrenginn og læt ykkur vita þegar km byja að rúlla upp og kg niður :haha:

Takk fyrir kvitt og pepp skvísur..gæti þetta ekki án ykkar...og hey hvenær er næsti hittingur hér í Danaveldi...þarf ekki að skoða barnabumbur og hittast ???


» 7 hafa sagt sína skoðun

08.08.2006 20:29:05 / Lullan

Still alive ;O)

:lol: Já já er ennþá á heilmiklu lífi, hef bara verið mikið út um allt. Var í 5 vikur á Íslandinu góða að vinna og svo skrapp ég í smá flakk til Parísar og naut svo sólarinnar hér í Danaveldi, var reyndar ekki hér í mesta hitanum... phúha er með of mikið ísbjarnaspik til að meika svoleiðis hita..

En að DDV matarræði, það er alveg búin að vera pása á því góða matarræði, því nú verr og miður, ekki að ég hafi þyngst ja kannski 500 gr til 2 kg rokka rosalega upp og niður, en nú sé ég að næsta miðvikudag í næstu viku er komið ár síðan ég byrjaði á ddv matarræðinu og ekki hef ég náð markmiðinu ! Ekki skrýtið, veit upp á mig skömmina en ég ræð engan veginn að halda utan um þetta þegar ég er ekki heima hjá mér, grænmetið gleymist og ávexti vantar...samt hef ég þetta á bak við eyrað....en finnst það og veit að það er alls ekki nóg, nú spýti ég í lófanna og held áfram. það eru amk 20 kg eftir sem þurfa að fjúka og ætla ég að halda áfram að skokka og vonandi get ég komist í ræktina í vetur til að lyfta og þjálfa vöðvanna líka aðeins.

Sparkið í mig skvísur þarf svo á því að halda... 8|


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.05.2006 19:46:58 / Lullan

Já leti kallast þetta víst !!

8)Veit ekki með ykkur hin... en ég blogga bara næstum ekkert þessa daganna, er í óðaönn að reyna að koma mér í lærdómsgírinn og gengur það lítið sem ekkert að mínu mati... vegna sólar og hita sem er hér í danaveldi ummm svo æðislegt..

Verst er að ég gleymi vigtunni miklu meira núna en ég gerði fyrir páska... helv... en ég segi að enn og aftur að þetta er minn skuggi og heldur mér við efnið, það er að fara í vigtun, hef ekki ( veit þetta er hræðilegt ) vigtað ofan í mig matinn síðan fyrir páska eða Íslandsferð... en tel mig halda mig nokkuð vel samt utan um prógramið fyrir utan nokkur djömm !!! En ég fer reglulega út að skokka/labba og geri upphandleggsvöðva æfingar ásamt magaæfingum... þýðir kannski lítið þegar bjórinn er drukkin í stórum stíl !!!

Skólinn er strembinn þessa daganna og ætla ég ekkert að lofa neinum vigtartölum eða neinu hér, það gerist þegar það gerist .... ætla nú samt að kasta inn apríl og mai myndum enda var ég í klippingu í dag og er algjör pæja hehe

Kveðjur á ykkur allar/öll sem eruð svo dugleg að kíkja hér inn... og baráttukveðjur til ykkar allra... Hildur þú ert hetjan mín :haha:


» 7 hafa sagt sína skoðun

25.04.2006 19:43:02 / Lullan

ER KOMIN HEIM !!!!

:haha: Komin aftur til Danmerkur ( reyndar fyrir viku síðan ) og leið svo vel með það, er ekki alveg að fíla mig á Íslandinu góða.. auðvitað yndislegt að hitta alla sina vini og fjölskyldu en hlakkaði svo til að homa HEIM :D

Matarræðið á Íslandi var hum... mömmumatur og svo datt ég niður á hitt og þetta sem ég hafði nú "ekki" fengið lengi og gúffaði í mig alltof miklu af rusli að mínu mati. Nú ég fór í vigtun í dag,skellti mér í skokkgallann og tók brekkurnar upp í KFUM höll (þar sem vigtunin fer fram ) af miklum ofsa,spennti alla vöðva sem ég fann að voru og eru á lífi eftir alltof mikla kyrrsetur á Íslandi...... og viti menn ég næstum því dottin út af listanum hjá þeim vegna of mikillar fjarveru en fékk svona sjens ;) að því að þetta var ég .... og vigtin fór NIÐUR um 3,1 kg :haha:

Þvílík gleði og skokkaði ég glöð heim á leið.... Annars elska ég veðrið hef labbað og sett mér ný takmörk með skokk og eins er ég farin að lyfta lóðum heima ! Já datt niður á eitt ( já eitt ) handlóð á útsölu hér í Intersport fékk það á 20 dkk 1,5 kg  og geri nu bingóvöðvaæfingar með því alltaf þegar ég kem inn frá því að skokka.. næst er síðan á prógraminu hjá mér að gera magaæfingar... koma því fast inn hvenær það verður er ekki ákveðið...en koma tímar koma ráð.. það tekur mig alltaf langan tíma að framkvæma það sem ég er að hugsa ( yfirleitt allaveganna það sem tengist mér sjálfri ! )

Svo er skólinn á miljón núna eftir páskanna.. jú það styttist í lokaprófið fyrir fyrsta árið og verð ég að spýta enn og einu sinni í lófanna, finnst ég ekki alveg lennt eftir svona langt frí...... skal vil og get 8)


» 8 hafa sagt sína skoðun

30.03.2006 01:06:39 / Lullan

Er hér..

:) Halló allir sem kíkja hingað...

Ég er hér heima á Fróni í skítaveðri, amk finnst mér það þegar vorið lét loksins sjá sig daginn sem ég fór frá DK. En nóg um það hér eru matarboð og kaffiboð hægri vinstri, ég er samt með varann á mér og fer eftir DDV matarræðinu eins og ég get og ætla. Freistingarnar eru allstaðar, sérstaklega þegar maður er búinn að vera lengi í burtu frá Klakanum .....:$

Ætla að þefa uppi hvenær vigtun er á morgun, en tel mig nú hafa gleymt meðlimskortinu mínu úti í DK..spurning hvort það gangi að hafa það ekki með sér ? Man ekki einu sinni númerið mitt.

Gangi ykkur vel skvísur.. ég tek smá rúnt á ykkur og ég er alltaf að bæta nýjum tenglum inn á síðuna... setti reyndar líka inn mars mynd..

Turilú...

UPPDATE : Fór á vigtina sem ég steig á áður en ég flutti til DK í júlí á síðasta ári ( vinkona mín lofar að hún sé í lagi ) en þá er ég búin að missa samkvæmt henni 18.5 kg :haha: og er hin lukkulegasta, gleymdi samt að vigta mig í morgun áður en ég borðaði e-h.. samt frábært og hlakka ég til að stíga aftur á þessa vigt þegar ég kem næst hingað


» 4 hafa sagt sína skoðun

23.03.2006 20:05:13 / Lullan

Er á faraldsfæti..

:) Halló allir sem kíkja hingað reglulega, veit alveg að ég hef alls ekki verið að standa mig í eftirfarandi : bloggi, matarræði, hreyfingu,hafa samband við vini mína ofl ofl...

En ég er 1,0 kg léttari í þessari viku miðað við síðustu.. þarf að breyta bannernum í samræmi við það.. og er svo í óðaönn að pakka niður..phúha.. :Shvernig fara 3 barna mæður að þessu, veit ósköp vel að það eru þvottavélar á hverju heimili líka á Íslandi he he en samt verður þetta e-h svo mikið þegar maður byrjar að pakka. Svo eru líka ferming og brúðkaup á Íslandi um páskanna og það þarf að taka með sér skó og svo líka svona skó og yfirhafnir og bla bla bla....

En þetta hefst allt saman, projectið gekk vel í síðustu viku og var ég bara rosalega ánægð þegar við skiluðum því af okkur :haha:

En ég er með hugann við mitt DDV matarræði þótt e-h lítið hafi farið fyrir því síðustu daga, vonandi er þetta svo innilega komið inn hjá mér að ég tek ekki lengur eftir því og er bara að borða eðlilega allan tímann ;)

Allaveganna ég verð tölvulaus heima ...nema ég stelist hér og þar ;) Og segi bara því Gleðilega páska og góðan létting allar skvísurnar..... turilú

Uppfærsla.. 24.03 búin að breyta bannernum og kom mér á óvart að ég er næstum því hálfnuð... ótrúlegt en satt... vííí híi ætla svo að standa mig á Íslandinu góða..


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Góður spjallþráður